Hot Souce keppni: Skráning er lokið.
Þátttaka er opin öllum þeim sem búa til sína eigin Hot Sauce!
Sósurnar verða metnar af öflugri dómnefnd eldpiparhausa ásamt gestum hátíðarinnar.
Tveir titlar verða í boði, annars vegar Besta sósan sem verður valin af dómnefnd og hins vegar Sósa fólksins sem verður kosin af gestum hátíðarinnar.
Vegleg verðlaun verða í boði fyrir sigursósurnar.
Þátttaka:
Þátttakendur verða beðnir um að koma með amk 300 ml.
Sósurnar verða settar í ómerkt ílát áður en þær eru smakkaðar til að tryggja sanngirni og að þær verði metnar að verðleikum.
Mikilvægt er að listi innihaldsefna (ofnæmisvalda) fylgi með til að tryggja öryggi þeirra sem smakka sósurnar.
Besta sósan:
Dómnefnd metur hverja sósu út frá bragði, ilmi, áferð og útliti.
Mikilvægt er að það sé gott jafnvægi milli bragðs og styrkleika sósunnar.
Sósa fólksins:
Gestum og gangandi verður boðið að smakka sósurnar og kjósa svo uppáhaldið sitt.
