
Reykjavík Chilli Festival verður haldið í fyrsta sinn í maí 2026
Áhugi á eldpipar hefur farið vaxandi á Íslandi eins og annarsstaðar í heiminum, fæstir vita hins vegar að mörg fyrirtæki á íslandi nota eldpipar í vöruframleiðslu, meira að segja eldpipar ræktaðan á Íslandi.
Eldpiparhátíðir eru mjög vinsælar í nágrannalöndum okkar og fannst okkur vanta slíka hátíð á Íslandi til að draga athygli að þessari frábæru afurð og þeim sem eru að vinna með hana.
Við teljum að Reykjavík Chilli Festival geti orðið spennandi árlegur viðburður sem drægi að erlenda ferðamenn sem vilja upplifa eitthvað einstakt. Hvað er meira spennandi en að koma til Íslands og smakka (og kaupa) eldpipar vörur sem eru gerðar úr hráefni sem er ræktað á landi elds og ís
Hvað verður í boði á hátíðinni:
Matarmarkaður með áherslu á sterkar vörur með eldpipar.
Eldpipar fræðsla.
„Hot sauce” ársins valin.
Sjóðandi heit átkeppni
Kokteilakvöld o.fl.